Ég ætla bara að segja ykkur aðeins frá því hvað var gert uppí Koti, ekki í stuttu máli samt.
6. Sept
Við fórum heavy seint að sofa kvöldið áður og vöknuðum öfga snemma um morguninn því við þurftum að fara í kennslu hjá Ruth, sem stóð yfir í svona 6-7 klst. Eftir það þá fórum við í Profile myndatökuna fyrir MCI síðuna og síðan seinna um kvöldið var höfð bænastund klukkan 9 á þerri bænastund voru allir heavy þreyttir en líka mjög blessaðir. Það kom einn kafli síðan í bænastundinni sem var allveg rosa rólegur nema hvað! þá heyrast allt í einu öfga háar hrotur í engum nema Jóhannesi sem hafði þá lagst á gólfið og stein rótast. Ég og Dorit voru bara.. whaa? hvað er að gerast en síðan hafði ég það í mér að vekja hann og hló síðan af honum í smá stund. Eftir bænastundina vorum við með smá svona kynningar á sjálfum okkur og ekki mátti gleyma slide show, því annars fékk maður mínus, sem er samt bara plat

en já. við fengum að vitameð fortíð fólks og afhverju það kom í skólann of fleira. Þetta var búið að færa næstum allan hringinn og Erdna var síðust og var s.s. að segja eitthvað með reykingar og svona, kemur þá ekki Halldór (hin Norski) og segir þessa snilldar settningu "Hey já allveg rétt, ég reykti einu sinni klósettpappír" og þá veltust allir um að hlátri því þetta var eitthvað svo einlægt hjá honum karlinum. en þar sem allir voru í heavy svefngalsa líka þá var þetta 10x fynndnara!
7. Sept
Dagurinn byrjaði vel og eftir mar var bænastund, síðan kennsla hjá Hjalta Þ. Grettiss. sem talaði um föstu og bæn. Eftir 2 tíma af góðri fræðslu var í matinn good old grónagrautur. Eftir mat var samkoma og síðan kennsla hjá hjalta til svona 18. Kjúttlingur í aftensmad. Hvað gera biblíuskóla nemar annað en að biðja og læra orð Guðs? Jú auðvitað fara í leiki. Við fórum í "ég hef aldrei" og "ég hef". Mjög fjölbreytt! Eftir það fórum við að halda bænastund. Allveg mögnuð og margt sem Guð náði að leysa af okkur, sem var allveg magnað! Ég fékk allveg þvílíkt gegnum brot enda hef ég bara með nær Guði síðan þetta. Allir voru svo þreyttir eftir bænastundina að allir voru bara að sofa

8. Sept
Fastan mikla. Sem var samt ekki það erfið, erfiðasta fyrir mig var bara freistingin. Eftir bænastundina sem var um morguninn fórum við 1. ára nemarnir út að labba. Ég var þarna að góðu róli með ipod, myndavél og síma. Tók nokkrar myndir af náttúrunna og svona. Nema hvað þegar ég er hálfnuð á leiðnni heim tjékka ég í vasana og þá vantar síma og myndavél! sem er samtals 58.000 kr. virði! og ég bara NEEI! og lappaði náklvæmlega sömu leið og ég koma og rannsakaði grasið all svakalega, sem betur fer var ekki rigning og ég fann hlutina mína strax eiginlega. Síðan var bara kennsla og svona skemmtilegheit. Það var komið hádegi en ekki hádegismatur sem er bara jákvætt sko. Við vorum bara í smá sovna frjálsum tíma og ákváðum þá bara fara í svona minnisleik að gaur1 sagði epli og gaur2 pera og svo framvegis. Þegar við vorum búin að vera í þessum leik í svona korter - 20 min, þá uppljóstraðist svolítið fyrir okkur,, þetta er matur! XD Við vorum semsé að fasta á mat og fórum í matarleik! Eftir það var ég eiginlega bara að bíða eftir bænastund þannig ég gæti farið að sofa, nema hvað legar loksins bænastundin kemur þá sofna ég á henni, en málið er þegar ég vakna þá er Halldór (hin norski) týdur og allt í panic! Löggan kölluð á staðinn og læti, en 2 min áður en löggan kemur Halldór inn eftir að hafa stokkið upp á Þríhyrninginn. Þannig allt endaði vel og allir sofnuðu vel.
9. Sept
Dagur byrjaði á Beikon og egg. þegar ég kom inn í matsalinn sá ég engann, þannig ég kíkti inn í eldhús, stóðu þá ekki allir starandi á pönnuna sem vaer að elda beikonið!! XD sjúúuklega fynndin sjón!